Sjálfstæðisflokkurinn hefur fest sig rækilega í sessi á síðustu vikum sem kyndilberi alvöru lýðræðis á Íslandi. Fjölmenn prófkjör flokksins hafa borið ríkulegan ávöxt með framboðslistum þar sem hlutur kvenna er sérstaklega glæsilegur. Víðsýni, skynsemi, ráðdeild, sjálfbærni og mannúð eru leiðarstef í málflutningi þeirra frambjóðenda sem best hefur gengið í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins að undanförnu. Þetta ber glöggt vitni öflugu grasrótarstarfi, þrautreyndum grundvallargildum og nútímalegum áherslum flokksins.

Lýðræði eða baktjaldamakk
Á sama tíma loga aðrir flokkar í illdeilum eða stilla upp á framboðslista í bakherbergjum. Sú mynd af íslenskum stjórnmálum sem birst hefur kjósendum undanfarnar vikur gerir valið á kjördag einfaldara fyrir marga. Í Sjálfstæðisflokknum vinnur stétt með stétt að því að byggja upp betra samfélag undir merkjum frelsis, jafnréttis og mannúðar. Vilji kjósendur öflugt velferðarkerfi sem grundvallað er á traustu atvinnulífi, blómlegt mannlíf og virkt lýðræði – þá er valið kristaltært. Verkin tala.
Ryk og blekkingar
Því miður vilja ekki allir stjórnmálaforingjar að kjósendur hafi skýra lýðræðislega valkosti eða hafi eitthvað um það að segja hverjir veljast til forystu í flokkunum. Tæpum áttatíu árum eftir lýðveldisstofnun handvelja sumir flokkar ennþá frambjóðendur á lista sína með ólýðræðislegum hætti. Þessir handvöldu foringjar kasta síðan ryki í augu kjósenda og láta í veðri vaka að næstu kosningar snúist um eitthvað allt annað en raunin er. En það er sama hvernig hin pólitísku spil eru stokkuð, þá er ekki nokkur leið að næsta ríkisstjórn verði mynduð um inngöngu Íslands í Evrópusambandið eða útgöngu úr NATÓ. Orðagjálfur breytir þar engu.
Kosið um störf og sjálfbærni
Næstu kosningar snúast um þrjú mál. Í fyrsta lagi hvort Ísland ætlar að halda áfram á þeirri vegferð að vinna bug á Kóvíd-kreppu og atvinnuleysi með raunverulegri verðmætasköpun. Hvort hlúa eigi að frjálsu og arðbæru atvinnulífi, efla innlenda framleiðslu og nýsköpun. Í öðru lagi snúast næstu kosningar um hvort Ísland ætlar að sýna metnað í umhverfismálum, verða leiðandi í sjálfbærni á grundvelli skynsamlegrar auðlindanýtingar og taka alvöru græn skref. Í þriðja lagi snúast næstu kosningar um að þátttöku, jafnrétti og lýðræði. Næstu kosningar snúast um láta verkin tala.
Svavar Halldórsson.
Höfundur er sérfræðingur í matarmenningu, stefnumótun og markaðsmálum.
Greinin birtist einnig á Vísi.is